26.11.2010 | 19:35
Viljum við fara að dæmi Kaliforníu?
Óhóflegar atkvæðagreiðslur "state referendum" eru taldar ein aðalástæðan fyrir því að Kalifornía er á barmi gjaldþrots. Ætlum við að feta í þessi fótspor? Greinargerð um málið:
http://www.democraticunderground.com/discuss/duboard.php?az=view_all&address=141x32782
|
Lokaorðið hjá kjósendum segir forseti Íslands |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:39 | Facebook



annaliljathorisdottir
siggibragi
hildurhelgas
don
ingahel-matur
pallblondal
ragnarfreyr






Athugasemdir
Ég er ósammála þessu. Kalifornía er alls ekki eina fylkið í Bandaríkjunum sem er á barmi gjaldþrots. Nevada t.d. er mun verr sett en Kalifornía og þar er ekki um "óhóflegar atkvæðagreiðslur" að ræða. Aðeins um 10 fylki í Bandaríkjunum eru með hallalausan reskur. Það er aðeins ein ástæða þess að allt er í kaldakoli í Bandaríkjunum (og annars staðar ef því er að skipta; Ítalía?) og það er úrelt fjármálakerfi, sem mergsýgur samfélögin og sekkur þeim dýpra og dýpra í skuldafen.
www.umbot.org
Egill Helgi Lárusson, 27.11.2010 kl. 02:48
Egill, ég er ekki að mæla fjármálakerfi heimsins bót og veit að mörg önnur fylki í Bandaríkjunum standa höllum fæti og sum Evrópulönd einnig, Ítalía þar á meðal. Vildi bara benda á að í Kaliforníu hafa "state referendum" varðandi ýmis mál ekki verið til að bæta ástandið og fréttir af hvert atkvæðagreiðslur þar í héraði eru að leiða hefur verið umfjöllunarefni alþjóðafréttatíma um lengri tíma. Ótal greinar og fréttir til um málið ef þú vilt kynna þér frekar. Þorvaldur Gylfason bendir einmitt nýlega á málið í grein og segir einmitt líka af því tilefni að skulda- og skattamál skuli ekki bera undir þjóðaratkvæði, vegna þess að kjósendur greiði ævinlega atkvæði gegn skuldum og sköttum.
http://www.visir.is/article/2010520959781
Hanna Friðriksdóttir, 27.11.2010 kl. 20:39
Ef fjármálakerfinu yrði umbylt í átt til hagsmuna fyrir samfélögin (efnahagslegt lýðræði) þá þyrfti fólk ekki að kjósa um skuldir og skatta því þá væri ekkert slíkt til að kjósa um.
Ég held t.d. að kosning um Icesave hefði verið nauðsynleg, því slíkur skuldabaggi á ekki að vera borin af borgurum landsins. Það var skýrt dæmi um það að hagsmunir ráðamanna fara ekki saman með hagsmunum kjósenda.
NB: Sviss er með mjög ríka hefð fyrir kosningum um ýmis mál og það er almennt talið halda samfélaginu saman enda ekki nema um 130 ár síðan landið logaði í borgarastríði.
Egill Helgi Lárusson, 28.11.2010 kl. 00:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.